top of page

Skilmálar - Taramy.is  ERF ehf

Skilmálar      Taramy.is - ERF ehf.

Upplýsingar um fyrirtækið

 

Vefverslunin er rekin af:                                ERF ehf,  Jöklafold 26, 112 Reykjavík
Kt: 611298-5449
Sími: 6992355
Netfang: taramyerf@gmail.com

 

Vefverslunin er starfsrækt í gegnum bókhaldsforritið notando.is sem sér um allt er viðkemur móttöku pantana auk geymslu nauðsynlegustu upplýsinga svo vara komist til kaupanda.  Einnig sér notando.is um beintengingu við Borgun ehf sem sér um allar korta greiðslur.

 

Taramy.is - ERF ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga á vöru eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust sem hafa verið til sölu.  Áskilinn er réttur seljanda til að staðfesta pantanir símleiðis. 

 

Greiðslumöguleikar:

 

  • Kreditkort eða debetkort í gegnum örugga greiðslusíðu Borgunar, Taramy.is - ERF ehf. Starfsfólk fyrirtækisins fær aldrei kortaupplýsingar viðskiptavina frá Borgun.

  • Bankamillifærsla frá kaupanda þarf að berast innan sólarhrings og senda þarf bankakvittun á taramyerf@gmail.com). Reikningsupplýsingar okkar eru 0514-26-5449 kt: 611298-5449.

  • Hægt er að greiða með korti þegar pöntun er sótt.

 

Afhending vöru:

 

  • Vörur eru sendar um allt land og sendingarmáti er ákveðinn af kaupanda en kaupandi greiðir póstburðargjald eða sendingarkostnað.

  • Miðað er við að allar pantanir séu settar í póst innan tveggja virkra daga frá greiðslu.

  • Þegar pöntun hefur verið send má gera ráð fyrir að Íslandspóstur taki 1-4 virka daga að koma sendingunni til viðskiptavina.

  • Hægt er að sækja vörur að Jöklafold 26, Reykjavík sé þess óskað og greiða við móttöku.

  • Viðskiptavinur fær staðfestingarpóst sendan á tölvupóstfang sem upp er gefið eftir að vara er pöntuð.

  • Ef hægt er að koma vöru inn um bréfalúku er hún send sem óskráð bréf annars sem pakki.

  • Hægt er að fá vöru senda sem ábyrgðarsendingu en slíkt þarf að panta sérstaklega með tölvupósti og greiðir kaupandi þá fyrir slíkt samkvæmt verðskrá póstsins.

  • Af öllum pöntunum dreifðum af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar.

  • Taramy.is - ERF ehf tekur ekki ábyrgð á að viðskiptavinir séu með rétt merkta póstkassa eða póstlúkur, í þeim tilfellum þar sem merkingum á ákvörðunarstað er ábótavant mun Íslandspóstur senda pöntuninaa til baka til sendanda og lendir tilfallandi kostnaður á viðskiptavini/kaupanda. Einnig eru viðskiptavinir hvattir til að hafa nöfn og heimilisföng eins ítarleg og kostur er á þegar pantað er.

  • Hafi pöntun þín ekki borist innan 7 virkra daga frá greiðslu er bent á að hafa samband við Taramy.is - ERF ehf. á netfangið taramyerf@gmail.com

 

Skilaréttur:

 

  • Vöru má skila/skipta innan 14 daga gegn fullri endurgreiðslu eða skiptum í aðra vöru EF VARAN ER ÓSKEMMD.

  • Framvísa þarf kvittun og skal vara vera í upprunalegum umbúðum, ónotuð og í söluhæfu ástandi.

  • Allir fylgihlutir þurfa að fylgja með vöru þegar vöru er skilað.

  • Kaupandi sendir vörur sem á að skila á eftirfarandi heimilisfang: Taramy.is - ERF ehf. Jöklafold 26, 112 Reykjavík og greiðir sendingarkostnað.

  • Útsöluvörum fæst hvorki skilað né skipt.

  • Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

 

 Gölluð vara:

 

  • Sé framleiðslugalli á vöru er viðskiptavinum boðin endurgreiðsla eða ný vara í staðinn.

  • Við greiðum sendingarkostnað sem um ræðir þegar um gallaða vöru er að ræða.

  • Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup.

 

 Persónuverndarskilmálar:

 

Við hjá Taramy.is - ERF ehf. fögnum nýrri persónuverndarlöggjöf (GDPR) sem tók gildi þann 15. júlí 2018 hér á Íslandi og höfum uppfært stefnu okkar í samræmi við löggjöfina.

Ný persónuverndarstefna okkar er eftirfarandi:

 

Almennt um persónuupplýsingarnar:

 

Við leggjum áherslu á öryggi persónuupplýsinga viðskiptavina okkar og förum með slíkar upplýsingar í samræmi við lög og reglur um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga. Við söfnum eingöngu upplýsingum um viðskiptavini okkar til þess að geta veitt þá þjónustu sem í boði er

 

Um söfnun persónuupplýsinga:

Við söfnum og vinnum með persónuupplýsingar til að:

 

  • Halda utan um og vinna með pantanir og vörukaup.

  • Auðkenna viðskiptavini.

  • Geta afhent keypta vöru, tilkynnt um stöðu pöntunar og til að geta haft samband við viðskiptavini okkar vegna spurninga eða upplýsinga er varða viðskiptin og um afhendingu vörunnar.

  • Geta staðfest heimilisfang viðskiptavinar sem borist hefur frá honum og aðrar nauðsynlegar upplýsingar er varða viðskiptin.

  • Geta aðstoðað viðskiptivini við vöruskil og/eða kvartanir.

  • Hafa umsjón með aðgangi viðskiptavina að vefmiðlum okkar.

  • Hafa yfirlit með vörukaupum.

  • Hafa yfirlit um vöru- og greiðslur (greiðslusögu) viðskiptavina.

  • Markaðssetja vörur með tölvupóstum, ábendingum um gleymdar/geymdar innkaupakörfur og samfélagsmiðlum.

  • Auðvelda samskipti við viðskiptavini okkar í gegnum síma, tölvupóst eða aðra rafræna miðla.

  • Geta rannsakað kvartanir.

  • Uppfylla lagalegar skyldur okkar á borð við öryggisskuldbindingar vegna vöru. Þurfi að innkalla vöru eða upplýsa viðskiptavini um öryggi vöru gætum við þurft að láta af hendi upplýsingar eða samskipti til almennings og/eða viðskiptavina.

  • Bæta þjónustu og vöruframboð okkar og auka öryggi fyrir viðskiptavini.

  • Koma í veg fyrir misnotkun á þjónustu okkar og koma í veg fyrir lögbrot glæpi gegn fyrirtækinu.

  • Koma í veg fyrir ruslpóst og allar óleyfilegar aðgerðir.

  • Einfalda notkun á þjónustu okkar með því að geyma upplýsingar um viðskiptavini, greiðsluleiðir, sendingarmáta og þess háttar.

 

Við söfnum og vinnum með eftirfarandi upplýsingar:

 

  • Nafn

  • Tengiliðaupplýsingar (s.s. heimilisfang, netfang, símanúmer)

  • Greiðsluupplýsingar (s.s. upplýsingar um færslur, dagsetningu færslna)

  • Greiðslusaga

  • Pöntunarsaga, s.s. hvaða vara var keypt og hvert hún var send.

  • Notandanafn

  • Upplýsingar um vörukaup

  • Upplýsingar um tölvur viðskiptavina, síma eða önnur tæki sem viðskiptavinur notar og stillingar þeirra.

  • Upplýsingar um hvernig viðskiptavinur notar vefsíður og aðra rafræna miðla fyrirtækisins.

  • Gögn sem notandi býr til (t.d. smellir á vefsíðu og vefflettingar).

  • Hvernig vefsíður og vefmiðlar eru notuð (t.d. hvaða vefsíður og hlutar vefsíðna hafa verið heimsótt og hverju hefur verið leitað að).

  • Bréf, tölvupóstar, símaskilaboð eða aðrar upplýsingar veittar vegna athugasemdar/kvörtunar.

  • Upplýsingar um kaupdag, staðsetningu vörukaupa eða vörugalla/kvartanir.

  • Notandaupplýsingar frá netaðgangi, t.d. þegar viðskiptavinur á í vandræðum með að innskrá sig.

  • Nafnlausar tæknilegar upplýsingar sem snúa að þeim tækjum sem notuð eru og stillingar, s.s. tungumálastillingar, IP tölur, vafrastillingar, tímabelti, stýrikerfi, skjástillingar o.fl.

  • Nafnlausar upplýsingar um notkun viðskiptavina, t.d. á hvaða hátt þjónustur voru notaðar, hvernig innskráningu var háttað, hvar og hversu lengi ýmsar síður voru heimsóttar, viðbragðstími, villur við niðurhal, hvernig hægt er að tengjast þjónustum og hvenær farið var úr þjónustum, o.s.frv.

  • Nafnlausar upplýsingar um hvernig vefsíður okkar og aðrir rafrænir miðlar eru notuð (t.d. hvaða síður eða síðuhlutar hafa verið heimsótt og að hverju hefur verið leitað).

  • Nafnlausar landfræðilegar upplýsingar

 

Um upplýsingar til þriðja aðila

 

Í einhverjum tilfellum gætu persónugreinanleg gögn verið færð til samstarfsaðila okkar t.d. þegar kemur að markaðssetningu (prentun, dreifing o.fl.), flutningi, dreifingu, tækniþjónustu og greiðsluleiðum. Gögn sem eru persónugreinanleg eiga alltaf að vera meðhöndluð af þriðja aðila í samræmi við lög og tilgang okkar við gagnasöfnun.

Við gætum einnig þurft að veita stjórnvöldum t.d. lögreglu eða skattayfirvöldum aðgang að persónugreinanlegum upplýsingum. Að auki gætum við þurft að veita bönkum, korta- og greiðsluleiðafyrirtækjum og flutningsfyrirtækjum aðgang að gögnum sem hægt er að persónugreina. Í slíkum tilvikum eiga þeir aðilar sem fá hjá okkur persónugreinanleg gögn að hafa lagalega heimild til slíks og vinna gögnin í samræmi við lög og reglur um vinnslu persónuupplýsinga.

 

Um smákökur (e. cookies)

 

Það eru tvær tegundir af smákökum. Ein geymir textaskrá í ákveðinn tíma, þar til hún rennur út. Tilgangur hennar er t.d. að segja þér hvað hefur gerst frá því þú heimsóttir síðast. Hin tegundin er svokölluð session cookie, sem hefur ekki dagsetningu. Textaskráin er vistuð tímabundið, á meðan þú ert á vefsíðu og gæti t.d. hjálpað til við að muna tungumálið sem þú ert að nota. Um leið og vafranum er lokað, eyðist textaskráin.

Á Taramy.is - ERF ehf notum við smákökur til að halda utan um það hvað þú hefur sett í vörukörfuna. Við notum líka smákökur til að halda utan um tölfræði, til þess að hjálpa við þróun síðnanna. Þeim upplýsingum er safnað í samstarfi við þriðja aðila.

Til þess að notast við vefsíður okkar þarf að samþykkja smákökur. Þú getur gert það í stillingum vafrans sem þú notar. Ef þú gerir það ekki, þá getur verið að vefsíðurnar virki ekki sem skyldi.

 

Bókhaldsgögn

 

Bókhaldsgögn okkar eru vistuð í samræmi við öryggiskröfur persónuverndarlaganna og laga um færslu bókhalds og varðveislu þess og á ábyrgð þess fyrirtækis sem um það sér hverju sinni. Geymsla og vistun slíkra upplýsinga miðast við lög þess efnis.

 

Takmörkun ábyrgðar

 

Að því marki sem gildandi lög heimila, ber Taramy.is - ERF ehf enga skaðabótaábyrgð vegna atvika sem upp kunna að koma vegna þess hvernig þjónustan er notuð eða hún útveguð, nema ef hægt er að rekja slík atvik til stórfelldrar/vítaverðrar vanrækslu eða misferlis af ásetningi af hálfu Taramy.is - ERF ehf.

Taramy.is - ERF ehf. ber enga ábyrgð á töfum sem verða á þjónustunni eða því að þjónustan virki ekki sem skyldi vegna óviðráðanlegra atvika.

 

Lög og lögsaga

 

Þessi persónuverndarstefna fellur undir íslensk lög. Leysa skal úr ágreiningi sem kann að rísa eða í tengslum við persónuverndarstefnuna fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur ef ekki er hægt að leysa úr honum á annan hátt.

 

Samþykki þitt

 

Með því að nota síðuna okkar samþykkir þú persónuverndarstefnu okkar og breytingar sem kunna að verða á henni.

 

Þessari persónuverndarstefnu var síðast breytt 15. júlí 2018.

 

Hafðu samband við okkur ef einhverjar spurningar vakna varðandi þessa persónuverndarstefnu með því að nota upplýsingarnar hér að neðan.

 

 

Taramy.is - ERF ehf       Kt. 660717-0640

Jöklafold 26

112 Reykjavik

taramyerf@gmail.com

Sími: 6992355

bottom of page